Ellefu úr sömu sænsku fjöl­skyldunni veiktust af CO­VID-19

Það er ekki að á­stæðu­lausu að fólk er hvatt til að nota hand­spritt og tryggja tveggja metra regluna enda er kórónu­veiran sem veldur CO­VID-19 bráð­smitandi. Fjöl­skylda ein í Sví­þjóð komst að raun um þetta enda veiktust allir ellefu í fjöl­skyldunni af veirunni.

Eins og flestir vita hefur Sví­þjóð farið verst út úr far­aldrinum af Norður­löndunum þegar litið er til fjölda smita og dauðs­falla.

Fol­ke Möller, 70 ára, segist í sam­tali við Afton­bladet vera þakk­látur fyrir það að geta varið meiri tíma með börnum sínum og barna­börnum eftir að hafa sigrast á veirunni. Hann var sá fyrsti í um­ræddri fjöl­skyldu til að veikjast. Svo veiktist eigin­kona hans, Ellin­or Back­man-Möller, 62 ára. Næst var röðin komin að dóttur þeirra og tengda­syni og svo dætrum þeirra sem eru 6 og 9 ára.

Þar með er ekki öll sagan sögð því annað upp­komið barn þeirra Fol­ke og Ellin­or, sonurinn Olov, veiktist af CO­VID-19. Það gerði eigin­kona hans líka og þrjú börn: Vilja, 9 ára, Juni­e, 7 ára, og Elvin, fimm vikna.

Í sam­tali við Afton­bledet segir Fol­ke að sem betur fer hafi ekkert þeirra veikst al­var­lega þó það hafi vissu­lega verið sláandi að greinast með veiruna. Hann segir að lokum að Svíar – eins og lík­lega fleiri – gætu vel passað sig betur.

„Fólk er mjög þétt upp við hvert annað á veitinga­stöðum og í verslunum. Mín til­finning er sú að fólk hafi slakað á of snemma,“ segir hann.