Elísa­bet verð­launuð: Fram­úr­skarandi ungur Ís­lendingur 2020

JCI Ís­land veitti þann 18. nóvember síðast­liðinn verð­launin Fram­úr­skarandi ungir Ís­lendingar. Í ljósi að­stæðna í þjóð­fé­laginu fór verð­launa­af­hendingin fram með breyttu sniði og fékk Guð­laug Birna Björns­dóttir, lands­for­seti JCI Ís­lands 2020, það verk­efni að af­henda verð­laun utan­dyra á köldum en fal­legum degi.

Í til­kynningu kemur fram að JCI-hreyfingin óski á hverju ári eftir til­nefningum til verð­launanna og dóm­nefnd velur síðan 10 ein­stak­linga sem hljóta viður­kenningu fyrir að vera Fram­úr­skarandi ungir Ís­lendingar vegna ein­staks fram­lags þeirra til ís­lensks sam­fé­lags.

Verð­launin sjálf eru síðan veitt til eins ein­stak­lings sem þykir skara sér­stak­lega fram úr en í ár var það Elísa­bet Brynjars­dóttir sem var verð­launað fyrir fram­lag sitt á sviði mann­úðar- eða sjálf­boða­liða­mála.

Elísa­bet er verk­efna­stjóri Frú Ragn­heiðar, skaða­minnkandi þjónustu Rauða Krossins en áður en hún varð verk­efna­stjóri þá vann hún sem hjúkrunar­fræðingur hjá Frú Ragn­heiði í tvö ár. Hún hóf feril sinn í verk­efninu sem sjálf­boða­liði áður en hún var ráðin til starfa.

Sem verk­efna­stjóri hefur hún unnið ó­trú­legt þrek­virki við skipu­lagningu starfsins og vitundar­vakningu um or­sakir, eðli og af­leiðingar vímu­efna­vanda fyrir ein­stak­linginn, svo og sam­fé­lagið í heild eins og að­stæður heimilis­lausra og þeirra sem minna mega sín. Hún er ötul bar­áttu­kona jaðar­settra hópa, til dæmis heimilis­lausra og þeirra sem nota vímu­efni í æð.

Hún fræðir al­menning um stöðu fólks með vímu­efna­vanda og brennur svo heitt fyrir mál­efninu. Hún hefur tekið að sér það hlut­verk að reyna sýna þjóðinni að fólk er fólk, alveg sama í hvaða að­stæðum það hefur lent og allir eiga skilið mann­úð og virðingu.

Eftir að óskað hafði verið eftir til­nefningum til verð­launanna í ár fengu tíu ein­staklingar viður­kenninguna fram­úr­skarandi ungir Ís­lendingar en yfir 100 mis­munandi aðilar voru til­nefnd af al­menningi. Það var dóm­nefnd sem valdi Elísa­betu sem Fram­úr­skarandi ungur Ís­lendingur 2020 en einnig voru verð­launuð þau Anna Þóra Baldurs­dóttir, Hulda Hjálmars­dóttir, Jóna Þór­ey Péturs­dóttir, Már Gunnars­son, Najlaa Attallah, Ninna Pálma­dóttir, Sara Björk Gunnars­dóttir, Stefanía Bjarn­ey Ólafs­dóttir og Þor­steinn V. Einars­son.

Dóm­nefndina í ár skipaði Andrés Jóns­son hjá Góðum sam­skiptum, Guð­laug Birna Björns­dóttir lands­for­seti JCI Ís­lands 2020, Hjálmar Örn Jóhanns­son út­varps­maður og skemmti­kraftur, Ingi­leif Frið­riks­dóttir fjöl­miðla­kona og Fram­úr­skarandi ungur Ís­lendingur 2018, Katrín Magnús­dóttir fram­kvæmda­stjóri hug­búnaðar­fyrir­tækisins Godo og Sigurður Sigurðs­son verk­efna­stjóri hjá Heimili og skóli.

Verð­launin eru hluti af al­þjóð­legri viður­kenningu sem JCI stendur fyrir um allan heim til að vekja at­hygli á því sem er vel gert og einnig til að hvetja annað ungt fólk til dáða.

Er­lendis eru verð­launin nefnd TOYP verð­laun, Ten Out­standing Young Per­sons of the World, en á meðal fyrri verð­launa­hafa á heims­vísu eru Kristín Rós Hákonar­dóttir sund­kona (2003), Guð­jón Már Guð­jóns­son at­hafna­maður (2009), Tony Robbins, Jacki­e Chan, Elvis Presl­ey, Bruce Lee og Bill Clin­ton svo ein­hver séu nefnd.