Elísabet skoðaði eldgosið í hælaskóm og síðkjól - Sjáðu myndirnar

Elísabet Hulda Snorradóttir, sem bar sigur úr býtum í lokakeppni Miss Universe Iceland í október síðastliðnum, vakti talsverða athygli þegar hún heimsótti gosstöðvarnar í Geldingadölum í gær.

Elísabet var mætt á staðinn í hælaskóm og síðkjól og hafa myndbönd af henni, þar sem hún skakklappast yfir hraunið, vakið talsverða athygli á Instagram. Elísabet birti svo myndir af sér á eigin Instagram-síðu þar sem hún bregður á leik með glóandi hraunið í baksýn.

Myndir af þessu má sjá hér að neðan: