Elísabet Ormslev glímir við óvenjulegt vandamál: „Vildi að þetta væri grín en mér er fúlasta“

Tónlistarkonan Elísabet Ormslev glímir við nokkuð óvenjulegt vandamál þessa dagana. Elísabet er nokkuð virk á Twitter og varpaði hún eftirfarandi spurningu fram til fylgjenda sinna í gær:

„Er til laufabrauð einhvers staðar? Jöbb, í júní. Ég er með craving í hangikjöt og uppstúf. Vildi að þetta væri grín en mér er fúlasta,“ sagði hún. Miðað við athugasemdirnar undir færslunni virðast fáir geta hjálpað Elísabetu og er hennar helsta von væntanlega sú að einhver eigi laufabrauð í frystikistunni.

Elísabet greindi frá því á dögunum að hún ætti von á barni með kærasta sínum, Sindra Þór Kárasyni, hljóðhönnuði hjá Sagafilm. Er erfinginn væntanlegur í heiminn í desember næstkomandi.