Elísa­bet neitaði að fara í sýna­töku: Gráti næst eftir komuna til landsins

Elísa­bet Guð­munds­dóttir, lýta­læknir sem meðal annars hefur talað gegn ströngum sótt­varna­að­gerðum, neitaði að fara í sýna­töku á landa­mærunum þegar hún kom til landsins frá Kaup­manna­höfn í gær. RÚV greinir frá en Elísa­bet birti mynd­bönd á Face­book-síðu sinni þar sem þetta kom meðal annars fram.

Elísa­bet stóð meðal annars fyrir undir­skrifta­söfnun ekki alls fyrir löngu þar sem hún krafðist þess að fram­halds­skólar yrðu opnaðir aftur og í­þrótta­starf barna og ung­linga myndi hefjast að nýju.

RÚV hefur eftir Rögn­valdi Ólafs­syni að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjóni að hann þekki ekki til þessa til­tekna máls sem kom upp í gær. Hann sagði það þó ekki al­gengt að fólk neiti að fara í sýna­töku eða í sótt­kví við komuna til landsins en slík mál fari inn á borð lög­reglu.

Í einu mynd­bandi sem Elísa­bet birti í gær segir hún að verið sé að fara með hana á lög­reglu­stöðina. Í öðru, sem birt er á vef RÚV, sést þegar hún er komin heim til sín. Hring­braut hefur reynt að ná tali af Elísa­betu til að spyrja hana nánar út í mála­vexti en hún hefur ekki enn veitt við­tal.

Í færslu sem hún birti svo skömmu eftir mið­nætti hvatti hún fólk til að mót­mæla á Austur­velli.

„Á Strikinu var fólk að undir­búa jólin, spjalla saman, syngja og hlæja. Ekkert barn með grímu og allt skóla og frí­stunda­starf með eðli­legum hætti. Í­þrótta­við­burðir leyfðir með allt að 500 á­horf­endum og ekkert verið að boða að fjöl­skyldur megi ekki vera saman á jólunum. Hittumst á Austur­velli og krefjumst svara, ekkert ná­granna­landa okkar með sams­konar reglur og hér hafa verið við­hafðar,“ sagði hún í færslunni.