Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir segist ætla að stefna þeim einstaklingum sem hafa hótað henni í athugasemdakerfum fjölmiðla og víðar. Þá ætlar hún að stefna embætti ríkislögreglustjóra vegna ummæla Rögnvaldar Ólafssonar þess efnis að hún sé ekki með lækningaleyfi.
Þetta sagði Elísabet í samtali við mbl.is í gærkvöldi, en eins og Hringbraut greindi frá um helgina fór Elísabet hvorki í sýnatöku né sóttkví þegar hún kom til landsins frá Danmörku á föstudag. Elísabet fékk yfir sig harða gagnrýni í kjölfarið en hún hefur talað mjög gegn þeim aðgerðum sem hafa verið í gildi hér á landi til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.
„Ég ætla að fara í mál við ríkið, í mál við ríkislögreglustjóra vegna þess að hann hefur sagt hluti um mig sem hann á ekkert með að segja. Það er búið að taka af mér lífsviðurværi mitt og barnanna minna. Það er búið að eyðileggja mannorð mitt. Að auki ætla ég í mál við alla þá sem segjast ætla að skaða mig. Mér hafa borist alls konar hótanir,“ sagði Elísabet í viðtalinu.
Greint var frá því um helgina að nafn Elísabetar fyndist ekki í starfsleyfaskrá Landlæknis en sjálf kveðst hún ekki vita hvers vegna það er. Hún fundaði með landlækni í gær vegna málsins.