Elísa sökuð um vændi á al­ræmdri vef­síðu: „Fólk hótar að mæta heim til mín“

Elísa Sif Rann­veigar­dóttir, ní­tján ára kennara­nemi, óttast að hel­ber ó­sannandi sem hefur verið dreift um hana muni eyði­leggja líf hennar. Frétta­blaðið fjallar um málið í dag en þar kemur fram að Elísa hafi verið sökuð um vændi á hinni al­ræmdu vef­síðu Chansluts.

Elísa stundar nám í grunn­skóla­kennara­fræðum við Há­skóla Ís­lands og segir hún að lygin hafi skemmt mann­orð hennar mikið.

„Fólk er byrjað að á­reita mig stans­laust í gegnum Insta­gram, Snapchat og Face­book og einnig hringir fólk beint í símann til mín og hótar að mæta heim til mín eða í vinnuna mína „svo ég gæti ekki sagt nei“,“ segir Elísa Sif.

Um er að ræða ó­nafn­greindan aðila sem full­yrðir að Elísa stundi vændi á vefnum On­lyFans. Hún kveðst hafa leitað til lög­reglu en fengið þau svör að lítið væri hægt að gera, lög­reglan geti að­hafst ef það kemur í ljós hver setti inn færsluna en það getur reynst þrautin þyngri.

Í Frétta­blaðinu í dag er rætt við Maríu Rún Bjarna­dóttur, doktors­nema í lög­fræði, sem skilaði greinar­gerð til ríkis­stjórnarinnar í febrúar síðast­liðnum um vernd þeirra sem verða fyrir brotum á kyn­ferðis­legri frið­helgi. Stefnt er að því að frum­varp sem byggir á greinar­gerðinni verði lagt fram í haust.

„Þetta er þrí­skiptur vandi. Það þarf að endur­skoða lög­gjöfina vegna þessa staf­ræna um­hverfis, fyrir­tækin sem sjá um vef­síðurnar þurfa að að­stoða við að eyða ó­lög­legu efni, og svo þurfa ger­endurnir að komast í skilning um að þessi hegðun hefur af leiðingar,“ segir María Rún.

María segir að Ís­land sé eina landið með sér­stakt svæði á um­ræddum vef, Chansluts, en þar er tals­vert um að óskað sé eftir myndum, jafn­vel nektar­myndum, af grun­lausum stúlkum.

„Þessir guttar eru að skiptast á myndum, möppum, selja að­gang að mynda­möppunum sínum. Þetta er ó­trú­leg hegðun.“ María Rún í Frétta­blaðinu. Hún bætir við að þó mál Elísu sé flókið séu til á­kveðin úr­ræði.

Nánar er fjallað um málið í Frétta­blaðinu í dag.