Svo virðist sem háar tekjur samfélagsmiðlastjörnunnar Þorsteins V. Einarssonar sem jafnframt er kynjafræðingur og umsjónarmaður hlaðvarpsins Karlmennskunnar sé á milli tanna fólks, ef marka má heitar umræður á samfélagsmiðlinum Twitter.
Áður hefur komið fram að samkvæmt tölublaði Frjálsrar verslunar var Þorstienn með 1.369.000 krónur á mánuði á síðasta ári og þar með tekjuhæstur áhrifavalda, á undan stórstjörnum líkt og Birgittu Líf Björnsdóttur og Sunnevu Einarsdóttur.
Sjálfur hefur Þorsteinn stigið fram og sagt af og frá að hann sé með þessar tekjur. Birti hann meðal annars eigin launaseðil og sagði að málið væri upprunið vegna vinnubragða bókara síns. Elínborg tekur fram að það breyti ekki megininntaki gagnrýninnar.
Sjá einnig: Þorsteinn neitar fyrir að vera launahæsti áhrifavaldur Íslands: „Þetta hljómar eins og lygasaga
Elínborg Hörpu og Önundarburs vekur athygli á málinu á Twitter síðu sinni. Aðgerðarsinninn, sem Hinsegin dagar báðu á dögunum afsökunar vegna handtöku árið 2019, skrifar:
„Sís, hvítur karlmaður sem græðir pening á því að tala um að vera sís, hvítur karlmaður. Fyndið,“ skrifar hán.
„En auðvitað undir femíniskum formerkjum. Létt að selja án þess að fá samviskubit. Hvernig væri að borga konunum og kvárunum sem koma í podcastið?“
Ummælin hafa vakið mikla athygli og ljóst er á umræðunum að um hitamál er að ræða. „Tekjuhæsti femíníski áhrifavaldurinn er karlmaður... pælið aðeins í þessari setningu,“ skrifar einn netverja og lætur fylgja með kvót í Árna Matthíasson um hvernig ekki sé hlustað á það sem konur segja fyrr en karlar segi það.
Þá er Danni Fann nokkur mjög ósáttur með ummæli Elínborgar:
„LOL þið eruð í alvöru að búa til svo mikinn can't win heim.
Fólk: HVAR ERU KK? ÞIÐ TAKIÐ ALDREI ÞÁTT EÐA ÁBYRGÐ.
Maður: Ég ætla að gera það að mínu aðalstarfi að fræða karlmenn um feminisma og reyna að vinna að bættu samfélagi.
Fólk: JÁJÁ FEÐRAVELDIÐ AÐ GRÆÐA Á FEMINISMA NÚNA?“
Fleiri tíst úr umræðunni má sjá hér að neðan:
En auðvitað undir femíniskum formerkjum. Létt að selja án þess að fá samviskubit. Hvernig væri að borga konunum og kvárunum sem koma í podcastið ? @karlmennskan
— Elí(nborg) (@hinseginkilljoy) August 18, 2022
hans miðill er fræðsla. fólk kemur til hans í þáttinn að fræða hann og hlustendur. Hann fær borgað fyrir fræðslur sem hann stendur undir, það er ekkert óvenjulegt að hann myndi þá borga öðrum fyrir þeirra fræðslur.
— lakkrís nammi (@ananasthiccni) August 18, 2022
Það hvort hann sé 200-300k yfir meðallaunum eða 600-700k yfir svarar í raun ekki innihaldi gagnrýninnar. Hef velt stöðu og tilgangi Karlmennskunar fyrir mér lengi í femínískusamhengi. En gott að leiðrétta.
— Elí(nborg) (@hinseginkilljoy) August 18, 2022
Okei kids þetta er bókstaflega það sem Elí er að tala um. Eitthvað sem Árni orðar svo vel og ég er nokkuð viss um að @idnadarmadurinn hefur haft orð á sjálfur.
— Elín Jósepsdóttir 🇺🇦 PutinIsATrashPerson 🇺🇦 (@elinjoseps) August 19, 2022
Tekjuhæsti femíníski áhrifavaldurinn er karlmaður... pælið aðeins í þessari setningu. https://t.co/GrruJm04Ha pic.twitter.com/Ta6Im1TZkb
LOL þið eruð í alvöru að búa til svo mikinn can't win heim.
— Danni Fann (@dannifann) August 18, 2022
Fólk: HVAR ERU KK? ÞIÐ TAKIÐ ALDREI ÞÁTT EÐA ÁBYRGÐ.
Maður: Ég ætla að gera það að mínu aðalstarfi að fræða karlmenn um feminisma og reyna að vinna að bættu samfélagi.
Fólk: JÁJÁ FEÐRAVELDIÐ AÐ GRÆÐA Á FEMINISMA NÚNA? https://t.co/D5ulZhcmpH