Elín um myndirnar sem Selenskíj birti á jólunum: „Pútín átti alls ekki von á að stríðið myndi þróast með þessum hætti“

„Það er napur­legt að hugsa til þess að nú yfir jólin, á meðan við njótum há­tíðar ljóss og friðar, stendur á­rásar­stríð Pútíns í Úkraínu sem hæst,“ svona hefst pistill Elínar Hirst í Frétta­blaðinu í dag.

„Volodí­mír Zelenskíj, for­seti Úkraínu, stendur sem fyrr í stafni og lætur engan bil­bug á sér finna, frekar en her­menn og al­menningur í landinu. Á­huga­vert er að fylgjast með Úkraínu­­for­seta á Twitter, en þar kemur hann yfir­leitt dag­lega á fram­færi skila­boðum til þjóðar sinnar og um­heimsins.“

Á að­fanga­dag birti Zelenskíj afar sorg­legar myndir frá borginni Kher­son við Svarta­haf í Úkraínu. Fólk liggjandi í blóði sínu framan við verslun, brennandi bílar, rústir og öng­þveiti: „Þetta er ekki við­kvæmt efni – þetta er hið raun­veru­lega líf,“ skrifar hann. „Kher­son í að­draganda jóla, í mið­bænum. Mikil skelfing þar sem drepið er í þágu ógnar og á­nægju. Heimurinn verður að sjá hvaða illsku við erum að berjast gegn.“

„Joe Biden Banda­ríkja­for­seti bauð Zelenskíj í heim­sókn til Banda­ríkjanna nokkrum dögum fyrir jól og Zelenskíj þáði boðið. Það var í fyrsta sinn sem hann fór frá Úkraínu frá því að Rússar hófu stríðið í febrúar árið 2022. Þetta sýnir hve Úkraínu­for­seti metur stuðning Banda­ríkja­manna mikils, enda Banda­ríkin eitt allra sterkasta her­veldi heims. Nú síðast á­kváðu Banda­ríkja­menn að senda Úkraínu­her hin öflugu Pat­riot-eld­flauga­varnar­kerfi, sem eru talin ein­hver þróuðustu vopn í heimi.“

„Mikill leyndar­hjúpur hvílir hins vegar yfir ein­ræðis­herranum Pútín og hvað sé að gerast í hans nær­um­hverfi. Ljóst er að vöru­skortur og verð­hækkanir á nauð­synja­vörum og leigu og hækkun vaxta er farið að hafa á­hrif á al­mennings­á­litið í Rúss­landi gagn­vart Pútín og dregið hefur úr vin­sældum hans. Coca-Cola, IKEA og fleiri þekkt vöru­merki eru horfin úr hillum neyt­enda. En fæstir þora að láta ó­á­nægju í ljós opin­ber­lega. Er­lendar leyni­þjónustur hafa þó reynt að varpa ein­hverju ljósi á stöðuna innan Kremlar­múranna, en fregnirnar eru allar fremur ó­ljósar. En eitt er víst að Pútín átti alls ekki von á að stríðið myndi þróast með þessum hætti. Það var full­kominn dóm­greindar­brestur hjá honum að halda að hann næði auð­veld­lega yfir­ráðum í Úkraínu,“ skrifar Elín að lokum.