Elín Hirst fann köllun sína í New York árið 2016

Elín Hirst, fjöl­miðla­kona og fyrr­verandi þing­maður, situr ekki auðum höndum þessa dagana þó að hún sjáist minna á sjón­varps­skjáum lands­manna en oft áður.

Elín var frétta­maður og frétta­þulur í mörg ár, bæði á Stöð 2 og á RÚV, en hún var kjörin á þing fyrir Sjálf­stæðis­flokkinn árið 2013. Þar sat hún allt til ársins 2016.

Elín var í at­hyglis­verðu við­tali við Lifðu núna, en mark­mið síðunnar er að gera líf og störf þeirra lands­manna sem komnir eru um og yfir miðjan aldur, sýni­legri en þau eru.

Í við­talinu fer hún meðal annars yfir árin í þing­mennsku og verk­efnin sem tóku við að þing­setunni lokinni. Hún fór á alls­herjar­þing Sam­einuðu þjóðanna í New York árið 2016 með hópi þing­manna, en skömmu áður hafði niður­staða próf­kjörs Sjálf­stæðis­flokksins legið fyrir þar sem í ljós kom að Elín náði ekki sæti.

„Þá var virki­lega að brjótast í mér hvað ég ætti að taka mér næst fyrir hendur nú þegar ég náði ekki sætinu fyrir Sjálf­stæðis­flokkinn. Ég verð að viður­kenna að ég var orðin svo­lítið lúin á því að hafa verið í allra eigu í ára­tugi. Það átta sig ekki allir á því hvað í því felst að vera “opin­ber per­sóna”. Fyrst var ég á­berandi í fjöl­miðlum og svo komin á þing og það fylgir þessum störfum mikil á­byrgð,” segir Elín en á þinginu var mikið fjallað um lofts­lags­mál.

„Þau voru þá ein­kenni­lega lítið komin á dag­skrá hér á landi,” segir hún en hún hugsaði með sér að þarna væri gott tæki­færi til að búa til sjón­varps­efni fyrir ís­lenskan markað.

Nú, tæpum fimm árum síðar, hefur Elín látið veru­lega að sér kveða í þessum efnum. Árið 2019 komu út þættirnir Hvað höfum við gert? og í kvöld verður svo fyrsti þátturinn í annarri þátta­röðinni um svipað mál­efni sýndur, Hvað getum við gert?. Sæ­var Helgi Braga­son eru um­sjónar­maður þáttanna og er Elín Hirst rit­stjóri á­samt Tinnu Jóhanns­dóttur.

Elín segist í við­talinu vera á­nægð með að tími hennar nýtist í eitt­hvað gagn­legt. „Mér finnst ég vera að gera gagn. Við ein­blínum á um­hverfis­málin og lofts­lags­málin og í ljós hefur komið að við vissum sjálf allt of lítið um þessi mikil­vægu mál.“

Í við­talinu ræðir Elín einnig um skilnaðinn, en hún og Frið­rik Frið­riks­son á­kváðu árið 2019 að fara í sitt hvora áttina eftir 35 ára hjóna­band.

„Ef ekki er sam­eigin­legur hljóm­grunnur sem er nauð­syn­legur í hverju hjóna­bandi þá er best að leiðir skilji,” segir hún meðal annars.

Hér má lesa viðtalið við Elínu í heild sinni.