Elín Jónasdóttir, veðurfræðingur og formaður Reykjavíkurfélags Vinstri grænna, hefur gefist upp á því að reyna að hjóla í Reykjavík: „Nú gefst ég upp og tek strætó á morgun, það er ekki hægt að hjóla í þessu færi,“ segir hún á Twitter.
Hún er ekki sú eina sem hefur lent í þessu en Ásdís Auðar Ómarsdóttir, íbúi á höfuðborgarsvæðinu, sagði við Fréttablaðið að hún hafi ítrekað sent kvartanir til borgarinnar vegna óruddra stíga, en Ásdís notar hjól til að komast til og frá vinnu.
Elín hefur líka kvartað og ætlar að kvarta aftur:
„Á eftir að senda eftir síðdegis hjólið heim. Mér sýnist forgangsröðun vera ábótavant miðað við áherslur um græna borg og virka ferðamáta,“ segir hún.
„ Ég hef nú gengið heim undanfarna daga (fékk far í vinnu) og verið á tæpasta vaði. Tek með brodda og eitthvað.“
Hún er ekki illa útbúin: „Á frekar feitum 20” nagladekkjum.“