Eldur í Hreyfingu: „Margir í sturtu og rétt náðu að henda utan um sig hand­­klæði“

Eldur kviknaði Í hreyfingu í Glæsi­bæ í morgun og þurftu allir iðk­endur líkams­ræktar­stöðvarinnar að flýja húsið með hraði. Harpa Péturs­dóttir, iðkandi í Hreyfingu, var í hóp­tíma þegar eldur kom upp og þakka fyrir það að hafa verið í fötum.

„Kennarinn opnar hurðina til að at­huga málið og þá er allt undir­lagt í reyk. Þannig við hlaupum út um neyðar­út­ganginn og þar var minni reykur og þar sér maður bara konurnar úti með hand­klæðin utan um sig sem hafa farið beint úr sturtunni. Þannig þetta virðist hafa kviknað niðri í kjallaranum þar sem þvotta­vélarnar og þurrkarnir eru,“ segir Harpa í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Margir voru í sturtu og hafa bara rétt náð henda utan um sig hand­klæði þar sem sturturnar eru í kjallaranum og þar hefur verið mesti reykurinn,“ segir Harpa sem jafn­framt þakka fyrir að hafa verið í fötum.

Fötin hennar og per­sónu­legir munir eru enn í skápnum hennar í Hreyfingu en hún veit ekki hve­nær hún mun komast í það aftur. Sam­kvæmt fyrstu fregnum voru engin slys á fólki.

Hægt er að lesa við­talið við Hörpu hér.

Margir voru í sloppnum fyrir utan Hreyfingu eftir að stöðin tæmdist.
Fréttablaðið/Anton Brink