Eldsvoði í Vatnagörðum - Myndband -

Mikill viðbúnaður er vegna bruna í Vatnagörðum en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu gengur vel að ráða niðurlögum eldsins.

Eldurinn er í áfangaheimili en samkæmt upplýsingum frá íbúa heimilisins kviknaði eldurinn í einu herberginu. Enn er óstaðfest hvort einhver sé inni í herberginu. Samkvæmt íbúanum sem vildi ekki láta nafns síns getið er það þó talið ólíklegt.

Hann sagði enn einn inni í húsnæðinu en á vettvangi er allt tiltækt lið slökkviliðsins, í það minnsta þrír slökkviliðsbílar og einhverjir sjúkrabílar.

Sjónarvottar segja slökkvi- og sjúkrabíla flykkjast að. Íbúar í Laugardalnum segjast finna reykjarlykt. Þetta kemur fram í í frétt Fréttablaðsins.

Fréttablaðið/Ernir
Fréttablaðið/Anton Brink