Eldsvoði í mörgum bílum á Akranesi

Eldur kviknaði fyrir stuttu í bílum á iðnaðarsvæði á Akranesi. Það staðfestir lögreglan í Borgarnesi . Ekki hefur náðst í slökkviliðið á Akranesi en að sögn lögreglunnar er þetta nýskeð.

Fréttablaðið náði sambandi við Terra, en starfsmaður staðfesti að kviknað væri í fjölda ökutækja á iðnaðarsvæði Terra á Akranesi. Um væri að ræða „slatta“ af ökutækjum, þau væru jafnvel í hundraðatali. Svo virðist sem fólk hafi orðið snemma vart við eldinn, en hann hafi verið fljótur að breiða úr sér.

Slökkviliðið vinnur nú að því að slökkva eldinn.