„Ekki átti ég von á að Einar yrði þriðja eða fjórða hækjan hans Dags eftir kosningasigur Framsóknar, sem byggðist fyrst og fremst á óánægju með Dag,“ Sigurður Oddsson, verkfræðingur og eldri borgari í Morgunblaðinu í dag.
Hann segir að við þetta bætist að meirihluti þjóðarinnar hafi verið á móti sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og segir að það hafi valdið því að fjöldi Sjálfstæðismanna og fleiri hafi ekki vitað hvað þeir áttu að kjósa.
„Fyrir kosningar stóð Sigurður Ingi í Degi og lét hann ekki komast upp með að eyðileggja Reykjavíkurflugvöll. Við það gekk í endurnýjun lífdaga gamla slagorðið: „Ætli sé ekki best að kjósa Framsókn,“ skrifar Sigurður.
„Mest vægi hafði loforð Einars um breytingar á stefnu meirihluta Dags. Nú veður nýi meirihlutinn áfram yfir allt sem fyrir er með óbreytta stefnu fyrri meirihluta í boði Einars, sem í samstarfi við Dag getur ekki staðið við gefin loforð. Dagur hefur plantað sínum mönnum í stjórnkerfið sl. 10-15 ár. Dæmin sýna að embættismenn þvælast fyrir þeim sem eru rétt kjörnir. Það er því lítil von til þess að Einar nái í gegn miklum breytingum þótt þörfin sé mikil. Heilbrigð skynsemi segir að Sundabraut, sem borgar sig strax, skuli sett fram fyrir borgarlínu, sem mun soga til sín fjármagn sem betur væri varið í arðvænlegar framkvæmdir, t.d. að greiða fyrir umferðinni með mislægum gatnamótum. Kostnaður borgarlínu er jafn óþekkt stærð nú og fyrir fjórum árum þrátt fyrir alla umræðuna. Íbúar og fyrirtæki munu verða fyrir miklum töfum og óþægindum á meðan framkvæmdir ganga yfir verði farið í þær á þann hátt sem „meirihlutinn“ boðar,“ heldur hann áfram.
Hann segir að fyrstu fréttir frá um myndun nýs meirihluta voru að þær hefðu skilað samkomulagi um að flýta Sundabraut.
„Strax eftir myndun meirihlutans sagðist Dagur vilja fá samanburð á brú og göngum. Tilgangurinn er augljóslega að tefja málið og eyðileggja möguleika á hagstæðustu staðsetningu fyrir brú. Hann fékk líka ríkið til að skipta á landi þar sem Sundabrú kæmi inn í borgina fyrir land við Borgarspítalann. Nákvæmlega eins og innar í Elliðavoginum, þar sem hann úthlutaði íbúðarlóðum í vegstæði sem Vegagerðin mat hagstæðast fyrir Sundabraut.“
„Nú er í umræðunni meiri taprekstur hjá borginni en áður hefur sést og er þá mikið sagt. Það gefur tilefni til niðurskurðar, t.d. fækkunar borgarfulltrúa sem Dagur fjölgaði úr 15 í 23. Með varamönnum eru það 16 stöðugildi + kostnaður (20 milljónir króna á mánuði?). Í stað þess að skera hér niður er stefnt í enn meiri skuldasöfnun. Ekkert mál virðist að henda flugvelli á besta stað og byggja annan fyrir 300 milljarða, þar sem eldgos gæti eyðilagt mannvirkin. Þar er sama þráhyggjan og kemur fram í að útrýma bílum með því að þrengja svo að þeim að ekki verði bílfært um borgina. Óbætanlegt tjón verður ef haldið verður áfram á sömu braut næstu fjögur árin. Fuglabúrin, pálmarnir, bragginn og öll hin gæluverkefnin eru smáaurar samanborið við eyðileggingu umferðarmannvirkja. Rétt er að benda Einari á – hafi hann ekki tekið eftir því – að hjá Degi helgar tilgangurinn meðalið og skipta þá loforð og skriflegir samningar engu máli, samanber hringtorg sem tefur umferð í stað mislægra gatnamóta sem greiða fyrir umferð.“
„Eina leið Einars til að tryggja stöðu Framsóknar er að slíta samstarfinu við Dag. Annars fer fyrir honum eins og manninum sem lofaði að ekki yrði sótt um inngöngu ESB á sinni vakt og uppskar fyrir það stærsta kosningasigur VG. Hann sveik loforðið strax eftir kosningar eða var jafnvel kominn upp í til Jóhönnu fyrir kosningar. Allir vita hvernig það endaði og hver staða VG er í dag. Til þess eru vítin að varast þau. Svik Framsóknar við Reykvíkinga Sigurður Oddsson Sigurður Oddsson » Hjá Degi helgar tilgangurinn meðalið og skipta þá loforð og skriflegir samningar engu máli, sbr. hringtorg sem tefur umferð í stað mislægra gatnamóta,“ skrifar Sigurður að lokum.