Eldri hjón sem búa á Esjumelum eru lokuð inni eftir að snjóruðningstæki borgarinnar ruddi stórum skafli að húsum á Kjalarnesi.
Þetta kemur fram í frétt hjá Vísi en sonur hjónanna, Guðmundur Ingi Skúlason, ætlaði í heimsókn til foreldra sinna en koma að stærðarinnar skafli sem hindraði för hans.
„Þar sem vegurinn víxlast, við Esjurætur, eru að minnsta kosti þrjú hús. Þar er búiða að ryðja upp eins og hálfs meters skafli sem lokar veginum gjörsamlega.“
Guðmundur segist hafa talsverðar áhyggjur af stöðunn.
„Þetta er ekkert þægilegt þar sem foreldrar mínir eru nú orðnir fullorðnir. Pabbi er að bíða eftir gangráði og þarna fer enginn upp eftir nema breyttur bíll. Það er ekkert hægt að hringja á sjúkrabíl eða neitt, þetta er auðvitað alls ekki nógu gott,“ segir Guðmundur.
Forgangsleiðir ganga fyrir
Hjalti Guðmundsson skrifstofustjóri Borgarlands Reykjavíkurborgar sem stjórnar snjóruðningi í borginni var inntur eftir svörum.
„Þetta gengur þannig fyrir sig menn fyrst forgangsleiðirnar. Svo verður hitt bara tekið,“ segir Hjalti en tekur fram að hann þekki ekki til þessa einstaka tilviks. Snjóruðningsmenn hafa hins vegar haft í nógu að snúast í dag og í gær.
Gríðarleg snjókoma var í gær á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess og hafa margir þurft að fresta ferðum sínum vegna veðursins.