Eld­hús­dags­um­ræður á þingi í kvöld: Sjáðu hvaða þing­menn halda ræður

Al­mennar stjórn­mála­um­ræður, svo­nefndar eld­hús­dags­um­ræður, fara fram á Al­þingi í kvöld og verða þær sendar út í út­varpi og sjón­varpi. Um­ræðurnar hefjast klukkan 19:30 og skiptast í þrjár um­ferðir. Hver þing­flokkur hefur átta mínútur í fyrstu um­ferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu um­ferð.

Í til­kynningu frá skrif­stofu Al­þingis kemur fram að röð flokkanna verði þessi í öllum um­ferðum: Mið­flokkurinn, Sjálf­stæðis­flokkur, Sam­fylkingin, Vinstri­hreyfingin – grænt fram­boð, Píratar, Fram­sóknar­flokkur, Við­reisn og Flokkur fólksins. Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður utan flokka, fær fimm mínútur í lok fyrstu um­ferðar.

Ræðu­menn flokkanna verða eftir­taldir:

Fyrir Mið­flokkinn tala Gunnar Bragi Sveins­son, 6. þm. Suð­vestur­kjör­dæmis, í fyrstu um­ferð, Sigurður Páll Jóns­son, 8. þm. Norð­vestur­kjör­dæmis, í annarri og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjalta­son, 8. þm. Suður­kjör­dæmis.

Ræðu­menn Sjálf­stæðis­flokksins eru Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála- iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra, í fyrstu um­ferð, í annarri Njáll Trausti Frið­berts­son, 6. þm. Norð­austur­kjör­dæmis, og í þriðju um­ferð Vil­hjálmur Árna­son, 9. þm. Suður­kjör­dæmis.

Fyrir Sam­fylkinguna tala í fyrstu um­ferð Odd­ný G. Harðar­dóttir, 6. þm. Suður­kjör­dæmis, í annarri Ágúst Ólafur Ágústs­son, 3. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis suður, og í þeirri þriðju Albert­ína Frið­björg Elías­dóttir, 10. þm. Norð­austur­kjör­dæmis.

Fyrir Vinstri­hreyfinguna – grænt fram­boð tala Bjark­ey Ol­sen Gunnars­dóttir, 7. þm. Norð­austur­kjör­dæmis, í fyrstu um­ferð, Ari Trausti Guð­munds­son, 5. þm. Suður­kjör­dæmis, og í annarri og í þriðju um­ferð Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, 3. þm. Suð­vestur­kjör­dæmis.

Ræðu­menn Pírata eru í fyrstu um­ferð Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, 4. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis suður, í annarri Hall­dóra Mogen­sen, 11. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis norður, og Helgi Hrafn Gunnars­son, 3. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis norður, í þriðju um­ferð.

Ræðu­menn Fram­sóknar­flokksins eru Líneik Anna Sæ­vars­dóttir, 9. þm. Norð­austur­kjör­dæmis, í fyrstu um­ferð, Willum Þór Þórs­son, 9. þm. Suð­vestur­kjör­dæmis, í annarri og í þriðju um­ferð Silja Dögg Gunnars­dóttir, 7. þm. Suður­kjör­dæmis.

Fyrir Við­reisn tala í fyrstu um­ferð Hanna Katrín Frið­riks­son, 7. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis suður, í annarri Jón Stein­dór Valdimars­son, 13. þm. Suð­vestur­kjör­dæmis, og í þriðju um­ferð Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir, 7. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis norður.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæ­land, 8. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis suður, í fyrstu og þriðju um­ferð en Guð­mundur Ingi Kristins­son, 12. þm. Suð­vestur­kjör­dæmis, í annarri um­ferð.

Þing­maður utan flokka, Andrés Ingi Jóns­son, 9. þm. Reykja­víkur­kjör­dæmis norður, talar í lok fyrstu um­ferðar.