Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavík fer fram um næstu helgi og er þingmaðurinn Brynjar Níelsson í framboði. Hann sækist eftir 2. sæti á lista flokksins en samkvæmt færslu hans á Facebook hefur hann ekki gert mikið til að tryggja sér sætið.
„Hef fengið kvartanir frá mörgum eldheitum stuðningsmönnum yfir því að ég sé ekki nógu áberandi í prófkjörsbaráttunni. Ég eigi að opna kosningaskrifstofu og ónáða stöðugt vinnandi fólk með símhringingum. Þá eigi ég að birta auglýsingar, helst með myndum af mér með konunni, börnunum og hundinum,“ segir Brynjar í léttu gríni.
„Kosningastjóri minn, Soffía frænka, telur hins vegar líklegast til árangurs í prófkjörinu að ég láti lítið fyrir mér fara. Væri kannski í lagi að birta eina auglýsingu á miðli með mynd. Ég fengi að vísu ekki konuna og börnin með á hana og alls ekki hundinn. Sennilega eini hundurinn í landinu sem neitar að fara út að labba með húsbóndanum. Hann er ekki ósvipaður hundinum hans Njáls Trausta sem þykist alltaf vera haltur þegar Njáll ætlar í göngutúr með hann,“ bætir Brynjar við.
„Engu að síður hitti ég marga í kosningabaráttunni og á iðulega gott spjall. Er oft spurður í samtölum af hverju ég viðri oft svona óvinsælar skoðanir. Bæta samt við að þeir séu frekar ánægðir með mig en taka sérstaklega fram að þeir séu ekki alltaf sammála mér. En eftir stutt samtal kemur í ljós að þeir eru sammála mér um nánast allt. Þetta segir manni það hvað pólitísk rétthugsun ruglar marga í ríminu. Það viðruðu ekki margir "óvinsælar skoðanir" í Ráðstjórnarríkjunum sálugu, hvað þá Þriðja ríkinu. En kannski voru þær ekki svo óvinsælar þegar betur var að gáð,“ skrifar Brynjar enn fremur.
„Það er forsenda alvöru lýðræðislegs samfélags að taka glímuna á markaðstorgi hugmyndanna. Við eigum ekki að taka öllu sem fram kemur í fjölmiðlum eða frá "kerfinu" sem gefnu og við eigum að efast. Með sama áframhaldi hættum við að vera sjálfstæðir einstaklingar og verðum bara hluti að einhverjum hópi eða kerfi. Segjum allri rétthugsun stríð á hendur. Frjálsa lýðræðissamfélagið er annars í hættu,“ segir Brynjar að lokum.