Eldgosið í Geldingardal er ekkert eins og kvikmyndin Titanic heldur miklu frekar eins og Terminator 2. Þetta segir Björn Teitsson, sem fór að sjá eldgosið um helgina.
Ljóst er að sitt sýnist hverjum um ágæti þessara mynda en Björn er á því að þarna sé hann að veita eldgosinu sitt besta hól. Hann segist fyrst hafa haldið að gosið væri eins og Titanic.
„Hélt þetta væri eins og Titanic. Svona "OF" vinsælt. Fóru allir á undan þér, svo læturðu tilleiðast, sérð myndina og já hún sökkar,“ skrifar Björn.
„EN gosið er miklu meira eins og Terminator 2. Vinsældir fullkomlega skiljanlegar, geggjað sjónarspil og þig langar strax að fara aftur.“
Sko gosið. Hélt þetta væri eins og Titanic. Svona "OF" vinsælt. Fóru allir á undan þér, svo læturðu tilleiðast, sérð myndina og já hún sökkar.
— Björn Teitsson (@bjornteits) March 29, 2021
EN gosið er miklu meira eins og Terminator 2. Vinsældir fullkomlega skiljanlegar, geggjað sjónarspil og þig langar strax að fara aftur.