El País með dóm um íslenska lagið: „Aburrida“ segja Spánverjarnir

Spænski fréttamiðillinn El País, sem er einn sá stærsti á Spáni, tók sig til og skrifaði umsögn um öll 40 lögin sem taka þátt í Eurovision þetta árið.

Flestir spá því að úkraínska lagið vinni og eru sigurlíkur þeirra samkvæmt veðbönkum hátt í 50 prósent. Þar á eftir koma Bretar, Ítalir, Svíar og svo Spánverjar sem eru með ágætis lag að þessu sinni.

Íslensku Systurnar hafa verið landi og þjóð til sóma á Ítalíu en þær stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldinu annað kvöld. Ekki er búist við því að íslenska lagið fari langt í keppninni í ár og er lagið í hópi þeirra sem eru með minnstu sigurlíkurnar, samkvæmt veðbönkum.

Dómnefnd El País er ekki ýkja hrifin af íslenska laginu, samkvæmt fyrrnefndri umsögn. Umsögnin um íslenska lagið er stutt og segja dómararnir að það sé „aburrida“, eða „leiðinlegt“.

„Sigga, Beta og Elín, Með hækkandi sól. Popplag þriggja systra með snert af kántrý. Tiltölulega rólegt lag og tempó í meðallagi. Dómur: Leiðinlegt.“

Umsögn El País má nálgast hér.