Ekkjan biður göngu­fólk um að sýna líki John Snorra virðingu

Í yfir­lýsingu sem Lína Món­ey Bjarna­dóttir, ekkja John Snorra Sigur­jóns­sonar fjall­göngu­manns sem lést í fyrra þegar hann reyndi að ganga að toppi K2 að vetri til fyrstur manna, biður hún göngu­fólki sem ætlar að ganga K2 að sýna líki John Snorra virðingu með því að taka ekki myndir af því.

Hún vill að lík hans hvíli á sama stað og göngu­fé­lagar hans Ali Sadpara og Juan Pablo, en þeir voru jarðaðir við K2. Ef ekki er hægt að koma líki hans til þeirra vill hún að það sé fært af göngu­leiðinni upp fjallið.

Fjöl­skylda John Snorra er þakk­lát fyrir allan þann stuðning sem fjöl­skyldan hefur fengið síðan John Snorri lést snemma árs 2021.

Hægt er að sjá frekari um­fjöllun um málið í frétt Frétta­blaðsins.