„Ekki saklaus af palladómum í annarra garð“: Sólveig Anna hjólar í Sóleyju - „Ég hefði samt haldið að hún hefði þroskast“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lætur baráttukonuna Sóleyju Tómasdóttur heyra það í færslu á Facebook. Þar rifjar Sólveig upp ummæli Sóleyjar frá því í febrúar þar sem hún tók fram að hún þyrfti ekki að styðja Sólveigu.

„Þriðja febrúar síðastliðinn, þegar að svokölluð kjaradeila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins var að nálgast hámark sitt, daginn sem að Efling lagði fram greinargerð sína í Félagsdómi vegna dómsmáls sem að SA höfðuðu til að kremja verkföll hótelþerna, sá Sóley Tómasdóttir ástæðu til að senda skilaboð til íslenskra femínista um að ekki þyrfti að sýna mér nokkurn stuðning.“ rifjar Sólveig upp.

Hún spyr jafnframt hvers vegna sér hafi þótt mikilvægt að senda þau skilaboð út í stað þess styðja láglaunakonur.

„Ástæðan er einföld: Vegna þess að ég hef gerst sek um eitthvað sem heitir “karllæg átakasækni“, og er mjög slæmt í fari kvenna samkvæmt Sóleyju, og svo auðvitað fyrst og fremst vegna þess að ég hef gerst sek um sjálfsmyndar-ögrun og vesen fyrir vinkonur hennar og slíkt skal ekki þola.“ bætir Sólveig við:

„Sumar konur eiga og mega vera “óþægar” og eiga skilið skilyrðislausan stuðning, þær sem að ekki hafa hlotið náð fyrir augum meginstraums-femínismans eiga að læra að hegða sér betur og kvenlegar sem allra fyrst.“

Undir færslu sinni heldur Sólveig áfram:

„Hafi Sóley ekki verið búin að tala eða skrifa sig út úr marktækri umræðu áður en hún flutti til útlanda um árið, þá gerði hún það þegar hún lýsti yfir að eina tiltekna konu (og baráttu hennar) þyrfti ekki að styðja.

Sóley sagði í viðtali að hún hefði flúið land vegna óvæginnar umræðu í sinn garð. Sjálf er hún ekki saklaus af palladómum í annarra garð. Ég hefði samt haldið að hún hefði þroskast, bæði vegna tíma og fjarlægðar en það er ekki að sjá.“