„Að aktívistar fái laun fyrir þá vinnu sem þeir gera er ekki ósanngjarnt.“ Þetta segir Ólöf Tara Harðardóttir, ein meðlima Öfga, í færslu á Twitter.
„Það er engin að græða á þolendum eða þessu samfélagslega meini sem ofbeldi er. Það að fá greitt fyrir þetta, spornar gegn því að við brennum út.“
Ólöf Tara segir að Edda Falak hafi fengið gagnrýni a sig fyrir að vera með áskriftarþætti og þannig hafa tekjur á aktívisma. „Öfgar hafa fengið gagnrýni fyrir buymecoffe reikninginn, sem fer i starfsemi samtakanna. Fjölmiðlar hafa sett það upp eins og það sé eitthvað söss..,“ segir Ólöf.
Ástþór nokkur segir að það sé nákvæmlega ekkert að því að fá greitt fyrir vinnu. „Hvort sem það er fyrir podcast eða meðlimir öfga í gegnum þau samtök Ekki langt síðan það þótti alveg fráleitt að fólk fengi greitt fyrir að sinna frístundum barna, öldin er önnur í dag og vonandi ekki langt í hugarfarsbreytingu.“