Ekki hyggi­legt af Twitter að reka Trump

Hannes Hólm­steinn Gissurar­son, stjórn­mála­fræði­prófessor, segist ekki vera viss um að það hafi verið hyggi­legt af for­svars­mönnum Twitter að loka að­gangi Donald Trump, Banda­ríkja­for­seta, fyrir fullt og allt.

Þetta kemur fram í Face­book færslu þar sem Hannes tjáir sig um nýjustu tíðindin frá Banda­ríkjunum. Twitter hefur verið upp­á­halds sam­fé­lags­miðill for­setans en for­svars­menn hans hafa á­hyggjur af því að hann hvetji til of­beldis. Það hefur Hannes ekki.

„Ég er ekki viss um, að þetta sé hyggi­legt skref. Rösk­lega 74 milljónir Banda­ríkja­manna kusu Trump. Þetta fólk vill ekki láta þagga niður í honum,“ skrifar Hannes.

„Síðustu tvö tístin voru engin hvatning til of­beldis, og það á ekki heldur að vera ó­leyfi­legt að setja fram grun um kosninga­svik, þótt ég sé sam­mála Willi­am Barr um, að hugsan­leg kosninga­svik á nokkrum stöðum hafi engu breytt um úr­slitin. Á sama tíma fá kín­verskir og íranskir stjórnar­erind­rekar að spúa lygum yfir heims­byggðina á Twitter.“

Ég er ekki viss um, að þetta sé hyggilegt skref. Rösklega 74 milljónir Bandaríkjamanna kusu Trump. Þetta fólk vill ekki...

Posted by Hannes Hólmsteinn Gissurarson on Saturday, 9 January 2021