„Ekki hægt að úti­loka stærri skjálfta“

Jörð heldur á­fram að skjálfa á Reykja­nesinu og í ná­grenni höfuð­borgar­svæðisins. Magnús Tumi Guð­munds­son, jarð­eðlis­fræðingur segir ekki hægt að úti­loka stærri skjálfta en öflugasti hingað til hefur verið 5,4 að stærð.

Þetta segir Magnús Tumi í sam­tali við Mbl.is. Hann segir að lík­lega séu nú­verandi skjálftar í hæsta lagi miðað við stað­setningu og gerð skjálftanna.

„Þetta er svona nokk­urn veg­inn það sem má bú­ast við. Þeir verða ekki mikið stærri á þessu svæði en það er ekki hægt að úti­­­loka það. Þetta verður eitt­hvað í þess­um dúr.“

Hann segir á­stæður þess að svo margir minni skjálftar ríði nú yfir séu þær að plötu­mótin liggi á ská. „Og þá verður þetta svo flókið. Gos­sprung­urn­ar eru þarna á milli og þær hafa aðra stefnu en plötu­­mót­in og þess vegna erum við að sjá svona marga minni jarð­skjálfta.“

Búa að hlutum

Magnús minnir á að mikil­vægt er að búa að hlutunum heima fyrir og annars staðar svo þeir fari ekki á flug við jarð­skjáltana.

„Við búum á landi þar sem eru jarð­skjálft­ar. Al­veg eins og við för­um í úlpu á vet­urna þá er þetta bara part­ur af því að búa hér að vera við­bú­inn því þegar það koma jarð­skjálft­ar. Við eig­um öll að hugsa þannig að það geta dottið hlut­ir yfir okk­ur.“