Ekkert smit greindist innanlands í gær

Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands í gær samkvæmt tölum sem birtust á vefnum COVID.is í morgun. Þetta eru góð tíðindi í ljósi þess að margir óttuðust að fjórða bylgja faraldursins væri að fara af stað eftir smit undanfarna daga.

Um helgina var greint frá því að tvö smit hefðu greinst utan sóttkvíar og tengdust þau bæði breska afbrigðinu. Í gær var svo greint frá því að tvö smit til viðbótar hefðu greinst.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir varaði við því í gær að fleiri smit ættu eftir að greinast á næstu dögum. Enn sem komið er hefur það ekki ræst og vonandi verður framhald á. Þess má þó geta að tvö smit greindust á landamærunum.

„Það myndi ekkert koma mér á ó­vart. Það gæti gerst því að með­göngu­tími svona sýkingar er dá­lítið langur, um 50 prósent af þeim sem smitast greinast með ein­kenni á innan viku,“ sagði Þórólfur í viðtali við Fréttablaðið.

Þegar hann var spurður hvort aðgerðir yrðu hertar ef fleiri smit myndu greinast sagði Þórólfur að það yrði skoðað. Núverandi reglugerð er í gildi til 17. mars og mun Þórólfur skila inn tillögum að breytingum síðar í þessari viku.