Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri afþreyingar sölu hjá Símanum, gagnrýnir Sýn á samfélagsmiðlinum Twitter fyrir að velja einungis karlkyns sérfræðinga í Stúkuna, uppgjörsþátt um Pepsi Max-deild karla.
„Ekkert kellingakjaftæði í íslenska boltanum sko!“ skrifar Magnús og deilir með ljósmynd af karlkyns þáttastjórnendum.
Máni Pétursson, einn þáttastjórnenda Stúkunnar, svarar Magnúsi fullum hálsi og spyr hversu mikið hann sé búinn að sýna af kvennafótbolta á Símanum? „Þetta er ævintýralega vandræðalegt hjá þér félagi,“ skrifar Máni. Magnús svarar honum því að Síminn hafi boðið í EM-kvenna árið 2017 en tapað útboðinu fyrir Ríkisútvarpinu.
„Bauðstu síðast í eitthvað 2017 og hendir þessu inn 2020. Framlag þitt til kvennaknattspyrnunar er ekki mikið. Ég geri ráð fyrir boði í ensku úrvalsdeildina i sumar frá Símanum. Þar sem þú ert búin að garga á torg samfélagsmiðlana hvað þú ert góður og réttsýnn maður,“ segir Máni.
Magnús tók ummælum Mána afar illa og minnti hann á að Síminn hefur til fjölda ára lagt mikinn metnað í Símamótið, í yngri flokkum kvenna, með beinum útsendingum síðustu ár.
„Ertu þá að tala um mótið sem þið eruð að kosta sjálfir líka. Eruð þið ekki bara að auglýsa eigið ágæti,“ svarar Máni. „Veit ekki betur en að við förum á slík mót líka. Þetta er bara vandræðaleg tilgerð í þér. Þrífðu bara ostalyktina þarna á Símanum og byrjaðu svo að rifa kjaft,“ skrifar hann enn fremur og deilir síðan færslu Magnúsar á sínum eigin reikningi:
„Hræsni ársins 2020. Framkvæmdas. Sjónvarps símans sem ekki hefur sýnt eina mín af kvennafótbolta. Gagnrýnir sjónvarpstöð sem býður uppá 2 kvennadeildir í kvennafótbolta og markaþátt bara skipaðan konum.“
Lesa má umræðurnar hér:
Ekkert kellingakjaftæði í íslenka boltanum sko! pic.twitter.com/QjB0cLwwdl
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) June 12, 2020