Ragnhildur Þórðardóttir, landsþekkt sem Ragga nagli, fagnaði nýverið níu ára afmæli án áfengis. Ástæðan að hún hefur ekki látið dropa af vökva Bakkusar inn fyrir sínar varir er þó ekki vegna þess að hún glímdi við áfengisvandamál. Síður en svo. Það má segja að Ragga nagli kunni eitt besta sparnaðarráð í heimi, bæði fyrir líkama og sál og eins fyrir budduna. Hún segir:
„Svona lítur líf án áfengis út.“
„Eitt og eitt rauðvínsglas í matarboðum sem samt skildi eftir sig þreytu og lélegri svefn.
Af þeim sökum lélegri frammistöðu í vinnu sem og á á æfingum sem veldur urlandi pirringi í metnaðarfullri ræktarrottu,“ segir Ragga nagli á Facebook-síðu sinni og bætir við:
En þegar farið út á galeiðuna var stundum djammað til síðasta manns. Skúruð útaf stöðunum.
Jafnvel gripið í einn og einn smók um fjögurleytið þegar síðasta heilasellan í framheilanum var sofnuð.“
Ragga nagli bæti við að daginn eftir hafi hún oft vaknað með móral og verið lítil í sér fram í miðja viku og étið skyndibitamat á borð við pizzur, bingókúlur og bragðaref.
„Með bjúgaða fingur og þjakaða sál var mánudagur eins og að ganga með gapastokk. Þessi ákvörðun var tekin því áfengisdrykkja einfaldlega passaði ekki inn í lífsstílinn,“ segir Ragga nagli og bætir við að hún skemmti sér jafn vel og betur án áfengis. Í dag yfirgefur hún hins vegar skemmtistaðina um klukkan eitt eftir miðnætti.
„Góður vinur sagði eitt sinn: „Eftir eitt, gerist ekki neitt“. Alla vega ekki neitt sem er mannbætandi eða uppbyggilegt.“
Hún segir nánast undantekningarlaust sé borin virðing fyrir þessari ákvörðun og enginn sem reyni að fá hana til að drekka líka.
„Það eru helst Danirnir sem skilja ekki þegar bjór er afþakkaður. Það er eins og að hafna súrefni í þeirra augum. Líf án áfengis er sparnaður bæði í andlegum og materíalískum skilningi,“ segir Ragga nagli og bætir við:
„Sparnaður á hitaeiningum
Sparnaður á peningum.
Sparnaður á kvíða.
Sparnaður á móral.
Sparnaður á samviskubiti…. djammviskubiti
Sparnaður á timburmönnum.
Líf án áfengis er gróði í öllum skilningi.“
Ofan á þennan lista bætist að hafa fulla stjórn á hvað er sagt, við hvern og hvenær. Þá sé hún laus við timburmenn daginn eftir. Þá sé líkamleg heilsa betri og auðvelt að mæta í ræktina.
„Skýrari hugur. Meiri tími og orka í að gera eitthvað uppbyggilegt sem áður fór í sjónvarpsgláp með mönnum timburs. Meira frelsi og rými til að gera aðra hluti Sjálfstraustið eykst því þú hefur enga hækju til að þora að tala við fólk eða vera þú sjálfur,“ segir Ragga nagli og bætir við að lokum:
„Líf án áfengis klæðir Naglann mjög vel en það er ekki þar með sagt að allir eigi að skrúfa tappann á og ganga í stúku. Það finnur hver sinn takt í þessu lífi. Taktur Naglans er og verður að dansa ódrukkin við gargandi graðhestarokk.“