Karlmaður í Kaliforníu hefur verið ákærður fyrir ógeðfelldan glæp sem fól í sér að gefa heimilislausum eitraðan mat og mynda síðan viðbrögðin.
Maðurinn, William Robert Cable, 38 ára, er grunaður um að hafa, í félagi við ólögráða ungling, gefið heimilislausum einstaklingum mat sem búið var að úða með efni sem heitir óleóresín úr Capsicum. Umrætt efni er ein aðaluppistaðan í piparúða sem lögregla notar til að gera einstaklinga óvirka. Viðbrögðin voru svo fest á filmu en eins og gefur að skilja olli eitrið fólkinu mikilli vanlíðan.
Saksóknari segir að brot Williams hafi verið hryllilegt og beinst að einstaklingum í mjög viðkvæmri stöðu. Kemur fram í frétt KTLA að sum fórnarlambanna hafi þurft að komast undir læknishendur vegna mikilla kvala í maga. Ljóst er að Williams gæti átt margra ára fangelsi yfir höfði sér.
Lögregla vinnur nú að frekari rannsókn málsins en enn á eftir að bera kennsl á nokkra einstaklinga í þeim myndböndum sem fundust á síma Williams.