Eiríkur uppljóstrar að það var móðir Þorsteins Más sem var flutt með sjúkraflugi frá árshátíðinni

Í gær var greint frá því að einstaklingur hafi verið fluttur heim með sjúkraflugi úr árshátíðarferð Samherja vegna beinbrots eftir óhapp. Ákveðið var að kalla til sjúkraflug til að koma þessum einstakling undir læknishendur á Íslandi sem fyrst.

SJÁ EINNIG: Fluttur heim með sjúkra­flugi úr árs­há­tíðar­ferð Sam­herja

RÚV greindi fyrst frá þessu, en í frétt miðilsins var fjallað um að það væri maður sem væri slasaður.

Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson fjallar um málið, en hann segir að „maðurinn“ sem um ræðir hafi verið Björg Finnbogadóttir. Hún er móðir Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja.

„Hún er 92 ára, fullfrísk og athafnasöm. Hún var sérstaklega mætt til að fagna með syni sínum og starfsfólki því þúsund manna árshátíðin hyllti afmælisbarnið, forstjóra sinn sem varð sjötugur fyrir fáeinum dögum. Að sögn fór ekki framhjā neinum að forstjórinn nýtur mikilla vinsælda hjá sínu fólki og segja má að hann…”eigi í því hvert bein,” eins og árshátíðargestur orðaði það.“ skrifar Eiríkur á vefsvæði sitt.

Þá bendir hann á að einn aflahæsti togari Samherja heiti einmitt Björg EA, í höfuðið á móður forstjórans.