Eiríkur spáir í spilin: Gæti þetta verið leynd ástæða þess að Guðlaugur hóti að skora Bjarna á hólm?

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, spáir í spilin varðandi umræðu um mögulegt framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, til formanns Sjálfstæðisflokksins.

Í samtali við Fréttablaðið segir Eiríkur ráðherrastól Guðlaugs mögulega vera í hættu vegna umræðu um að ekki sé víst að Guðrún Hafsteinsdóttir taki við ráðherrastólnum af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra líkt og gengið var út frá í upphafi.

„Þegar hann [Bjarni] segir aðrir möguleikar þá berist böndin óhjákvæmilega að ráðherrastóli

Guðlaugs Þórs. Því hann er væntanlega ekki að fara taka út varaformanninn og heldur ekki

Áslaugu Örnu,“ segir Eiríkur. Þá er haft eftir honum að mögulega sjái Guðlaugur í hvað stefni og sé því að ógna framboði.

Þá segir Eiríkur tvö möguleika í stöðunni hjá Guðlaugi: „Guðlaugur Þór er að búa sér til stöðu með þessu held ég að einhverju leyti. Einn tilgangurinn gæti verið að skora á formanninn á hólm og reyna verða formaður. Annar tilgangur gæti líka verið að búa til stöðu til að tryggja ráðherrastólinn. Fá Bjarna til að tryggja hann í sessi inni í ríkisstjórninni og fá fram yfirlýsingu frá Bjarna um að hann sitji áfram,“ segir Eiríkur og bætir við:

„Þá gæti hann mögulega fallið frá framboðinu,“

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðisns.