Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson, sem heldur úti vefnum Eirikurjonsson.is, segir þar frá því að komið hafi til „fjörlegra og harðra orðaskipta“ um útboð ríkisins á hlutnum í Íslandsbanka á dögunum – þessu sé að minnsta kosti haldið fram.
„Sagt er að komið hafi til fjörlegra og harðra orðaskipta um bankasöluna á milli þeirra Andrésar Magnússonar starfsmanns Morgunblaðsins og Benedikts Erlingssonar leikstjóra á Ölstofunni á síðasta vetrardag. Endaði umræðan með því að Benedikt gekk á dyr frá hálftómu glasi en Andrés sat eftir við sinn keip með glasið hálffullt,“ segir í stuttum fréttamola á vef Eiríks.
Líklegt má telja að í samræðunum hafi Andrés komið ríkinu til varnar en Benedikt látið sína skoðun í ljós, umbúðalaust.