Ei­ríkur og fleiri sárir út í Jóhönnu Vig­dísi: „Um­sjónar­manni og RÚV til skammar“

„Furðu­leg um­mæli stjórnanda Kast­ljóss í gær eru því miður lýsandi fyrir við­horf í garð kennara sem er allt­of út­breitt í þjóð­fé­laginu - að þeir séu bara að vinna þegar þeir eru í kennslu­stofunni.“

Þetta segir Ei­ríkur Rögn­valds­son, prófessor í ís­lensku, í færslu á Face­book-síðu sinni. Ei­ríkur og fleiri hafa lýst ó­á­nægju sinni með um­mæli Jóhönnu Vig­dísar Hjalta­dóttur í við­tali við Lilju Al­freðs­dóttur mennta- og menningar­mála­ráð­herra í Kast­ljósi í gær­kvöldi.

Þar var meðal annars rætt um sam­komu­bann og þá stað­reynd að fram­halds­skólar og há­skólar væru lokaðir vegna CO­VID-19. Spurði Jóhanna Lilju meðal annars út í laun kennara meðan á þetta á­stand varir og hvort yfir­völd ætluðu að tryggja þeim laun þó engin kennsla færi fram í skólunum. Segir Ei­ríkur að Jóhanna Vig­dís hafi gefið í skyn að kennarar væru ekki að vinna þótt skóla­starf væri ekki með hefð­bundnum hætti.

Ei­ríkur vísar í orð Jóhönnu sem sagði meðal annars:

„Hvað með til dæmis eins og laun kennara og annars starfs­fólks eins og til dæmis í fram­halds­skólum og há­skólum þar sem engin kennsla fer fram?“

„En þið ætlið að tryggja þessu fólki laun á meðan það er engin kennsla í þessum skólum?“

Ei­ríkur, sem hefur marga fjöruna sopið þegar kennsla er annars vegar, bendir á að hann sé með marga fram­halds­skóla­kennara og há­skóla­kennara á vina­listanum. „Allir kennarar sem ég veit um eru upp fyrir haus í kennslu þessa dagana. Margir þeirra eru að til­einka sér nýjar kennslu­að­ferðir og það er mjög tíma­frekt. Að full­yrða að kennarar séu ekki í vinnu, og velta því fyrir sér hvort þeir eigi að vera á launa­skrá, er um­sjónar­manni og RÚV til skammar.“

Færsla Ei­ríks hefur vakið mikla at­hygli og taka margir undir með honum. Í þeim hópi er til dæmis Katrín Júlíus­dóttir, fyrr­verandi ráð­herra og þing­maður. „Er með tvo fram­halds­skóla­nema á heimilinu og hef aldrei séð þá læra jafn mikið og nú. 3 verk­efni í gær, próf í fyrra­dag og meira í dag. Þeim er sko haldið vel við efnið!“

Guð­mundur Gunnars­son, fyrr­verandi for­maðu Raf­iðnaðar­sam­bandsins, blandar sér einnig í um­ræðuna. „Spurningar hennar um mál vinnu­markaðs og sam­skipti þar eru hreint út sagt oftast kostu­leg og fram­koma hennar við gesti Kast­ljóssins er með þeim hætti að maður er eigin­lega bara hættur að horfa á Kast­ljósið,“ segir hann.

„Maður verður nú bara svo­lítið sár - þar sem maður situr og hamast við að taka upp kennslu fyrir morgun­daginn (með tækni sem ég var að læra á fyrir 15 mínútum, á milli þess sem ég svara tölvu­póstum frá nem­endum). Ég hef kannski tíma til að horfa á þetta Kast­ljós­við­tal eftir próf­sýningu í vor,“ segir einn kennari í þræðinum.

Ei­ríkur skrifaði aðra færslu í morgun þar sem hann sagði um­mæli stjórnanda Kast­ljóss því miður vera lýsandi fyrir við­horf í garð kennara – að þeir sinni bara vinnunni inni í kennslu­stofunni meðan kennsla fer fram.

„Það við­horf er svo aftur ein birtingar­mynd þess við­horfs til menntunar sem hefur verið ríkjandi meðal stjórn­valda og stjórn­enda í at­vinnu­lífinu, og hefur leitt til þess að við höfum lagt allt okkar traust á lág­launa­at­vinnu­grein sem rekin er að veru­legu leyti með inn­fluttu vinnu­afli í stað þess að byggja upp þjóð­fé­lag þar sem menntun, þekking, sköpun og hug­vit eru megin­stoðirnar.“