Guðni Tómasson, dagskrárgerðarmaður á RÚV, greinir frá því á twitter í dag að Rás 1 mun vera með sérstakan kveðjuþátt fyrir Eirík Tómasson klukkan 17:03 í dag.
Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður og rithöfundur lést aðeins 52 ára að aldri í byrjun ágúst. Greint er frá því á Vísi að Eiríkur verður borinn til grafar í dag og er hægt að lesa ítarlega minningargrein Jakob Bjarnar um Eríki héren þar segir meðal annars að fjölmiðlar verða ekki samir eftir fráfall Eiríks Guðmundsonar; menningarumfjöllun almennt verður það ekki heldur né sjálfur skáldskapurinn.
Eiríkur starfaði árum saman sem þáttastjórnandi á Rás eitt og stýrði þar meðal annars menningarþáttunum Víðsjá og Lestinni. Hann gat sér orð fyrir skapandi og vönduð efnistök, pistlar hans um menningar- og þjóðmál vöktu athygli og viðtöl hans við bókmenntafólk og aðra voru ígrunduð þannig að eftir var tekið.
„Í dag kveðjum við elsku Eirík. Áfram lifir minningin um góðan dreng sem gaf mikið af sér fyrir íslenskt menningarlíf og listir. Í dag verður á dagskrá Rásar 1, auðvitað kl. 17:03, þátturinn Undir himninum þar sem röddin góða hljómar. Markmiðið að leyfa Eiríki bara aðeins að tala,“ skrifar Guðni.
Stefán Eiriksson, útvarpsstjóri, deilir færslunni og segir: „Hlýjar kveðjur til allra aðstandenda og vina Eiríks Guðmundssonar“
Þá er þó nokkrir sem hvetja fólk til að hlusta enda en óhætt að fullyrða að Eiríkur hafi verið um árabil einn eftirtektarverðasti útvarpsmaður landsins.
Hlýjar kveðjur til allra aðstandenda og vina Eiríks Guðmundssonar. https://t.co/tKDHgxaeyM
— Stefán Eiríksson (@StefanEiriks) August 26, 2022