Ei­ríkur Jóns­son með CO­VID-19: Telur sig hafa smitast í Breið­holts­lauginni

Fjöl­miðla­maðurinn Ei­ríkur Jóns­son er með CO­VID-19 en Ei­ríkur greinir sjálfur frá þessu á vef sínum, eirikur­jons­son.is.

Það var á laugar­dag að hann vaknaði sveittur og kaldur með dynjandi höfuð­verk. Hann var kominn með bullandi hita og segist ekki hafa getað stigið í fæturna.

„Vissi strax að þetta væri Co­vid. Svaf allan laugar­daginn í rennandi blautum rúm­fötum og hita­stig líkamans virtist sveiflast frá frosti í funa. Missti þó aldrei andann. Braggaðist um kvöldið og var kominn í sýna­töku í há­deginu á sunnu­dag þar sem grunur minn var stað­festur,“ segir Ei­ríkur.

Ei­ríkur segir að það skrýtna sé að síðan þá hafi hann ekki kennt sér meins. Hann er nú á fjórða degi í ein­angrun og kveðst stál­sleginn.

Ei­ríkur segir að engin leið sé að vita með vissu hvaðan smitið kom en sjálfur er hann á því að hann hafi smitast í Breið­holts­lauginni. Hann var í lauginni á sunnu­deginum í síðustu viku en lauginni var lokað á þriðju­deginum vegna smits sem kom þar upp.

Hér má lesa færslu Ei­ríks í heild.