Ein hárprúðasta rokkstjarna Íslands, Eiríkur Hauksson, sigraðist nýverið á krabbameini sem hann greindist með fyrir 20 árum. Hann mætti í viðtal í Félagsheimilið á Rás 2 til að ræða um rokkið, lífið og krabbameinið.
Eiríkur segir þar að hann hafi ekki óttast dauðann eftir greininguna en hann hefur búið í Noregi síðan 1988 en hann flutti út þremur árum eftir hann gaf út slagarann Gaggó Vest eftir Gunnar Þórðarson.
Í viðtalinu svarar Eirikur 22 spurningum sem er vikulegur dagskrárliður í Félagsheimilinu. Hann viðurkenndi meðal annars að hafa synt nakinn í sjó. „Þetta er í Noregi og það sem gerðist er að við vorum í vinnuferð,“ segir hann. Þá voru litlar örverur í vatninu sem birtust og mynduðu snotur mynstur sem söngvarinn heillaðist af. „Þetta lifir í minningunni, þetta var svo ægilega fallegt að ég fór bara á tillanum,“ segir hann.
Þar segist hann einnig að hann óttist stríð meiri en krabbameinið.
„Ég óttast þriðju heimsstyrjöld og það hefur sýnt sig að það eru rosalega margir vitleysingar að stjórna heiminum,“ segir hann. En hann hræðist ekki eigin dauðdaga. „Ég óttast ekki dauðann, þá myndi ég ekki vera að þessu fikti með stönglana,“ bætir hann við.
Hann sigraðist á krabbameini sem hann greindist með fyrir um tveimur áratugum og sú reynsla fylgir honum. „Ég er svo óheppinn en samt heppinn að lenda í þessu krabbameini mínu og lifa það af á fínan máta. Ég losnaði algjörlega við að óttast dauðann, það fór bara.“
Hægt er að lesa og hlusta á viðtalið við Eirík á Rás 2 hér.