Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku, hefur lagst yfir afsökunarbeiðni Samherja sem birtist í gærmorgun og greint hana í þaula. Eiríkur gerði svipað í lok maímánaðar eftir að fyrirtækið barst afsökunar í kjölfar afhjúpunar á hinni svokölluðu skæruliðadeild.
Í færslu á Facebook-síðu sinni tekur hann setningar úr afsökunarbeiðninni sem birtist í gærmorgun og leggur sitt mat á þær. Ef marka má færslu hans gefur hann afsökunarbeiðninni ekki háa einkunn og segir ýmislegt í henni sem komi málinu ekkert við. Þá sé lítið gert úr því sem miður fór, til dæmis í Namibíu og almenningur þar sé til dæmis ekki beðinn afsökunar.
Í upphafi yfirlýsingarinnar sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í gær stóð til dæmis:
„Ámælisverðir viðskiptahættir fengu að viðgangast í starfsemi útgerðar Samherja í Namibíu.“
Um þessa setningu segir Eiríkur:
„Í upphafi er notað lýsingarorðið „ámælisverðir“ – miklu vægara orð en „saknæmir“, „vafasamir“ eða önnur svipuð sem hefðu komið til greina. Notuð er miðmyndarsögnin „viðgangast“ sem hefur engan geranda – það gerði enginn neitt, það bara gerðist. En það er ekki einu sinni sagt „viðgengust“, heldur „fengu að viðgangast“ – svona eins og til að gefa í skyn að einhverjir aðrir, t.d. eftirlitsaðilar, hefðu átt að bregðast við. Ekki er sagt „viðskiptahættir okkar voru ámælisverðir“.
Næsta setning á eftir er þessi hér:
„Veikleikar voru í stjórnskipulagi og lausatök sem ekki áttu að líðast.“
Eiríkur segir að hér komi nánari útfærsla á því hvers vegna viðskiptahættirnir voru „ámælisverðir“. „Það fólst ekki í saknæmum athöfnum, heldur í því að „veikleikar í stjórnskipulagi“ og „lausatök“ voru í rekstrinum.“
„Við brugðumst ekki við eins og okkur bar.“
Eiríkur segir athyglisvert að hér sé allt í einu skipt yfir í germynd. „Eins og eina sök fyrirtækisins felist í lélegri stjórnun. Jú, við létum þetta dankast, en við gerðum ekkert af okkur.“
„Þetta hefur valdið uppnámi hjá starfsfólki okkar, fjölskyldum, vinum, samstarfsaðilum, viðskiptavinum og víða í samfélaginu.“
Um setninguna hér að framan segir Eiríkur:
„Hér er byrjað á ábendingarfornafninu „þetta“ sem ekki er alveg ljóst í hvað á að vísa – væntanlega í „veikleika í stjórnskipulagi“ og „lausatök“ sem nefnd eru í efnisgreininni á undan. Orðalagið „valdið uppnámi“ er ekki mjög nákvæm lýsing á sakamálarannsókn í þremur löndum. Röðin á þeim sem eru beðin afsökunar er athyglisverð – byrjað á starfsfólki, fjölskyldu og vinum sem „veikleikar í stjórnskipulagi“ og „lausatök“ hafa varla angrað mikið. Hins vegar er alveg sleppt að nefna almenning í Namibíu.“
„Við hörmum þetta og biðjumst einlæglega afsökunar.“
Eiríkur segir að hér sé aftur ekki alveg ljóst til hvers „þetta“ vísar en væntanlega vísi það til þess að hafa „valdið uppnámi“ eins og það er orðað í afsökunarbeiðninni.
„Það er ekki beðist afsökunar á gerðum fyrirtækisins, heldur á viðbrögðum annarra. Eins og oft vill verða varpar „afsökunarbeiðnin“ því ábyrgð á aðra.“
„Það geri ég persónulega sem forstjóri og einnig fyrir hönd félagsins sem ætíð hefur haft vönduð vinnubrögð að leiðarljósi í allri sinni starfsemi.“
Eiríkur segir að það að hafa „vönduð vinnubrögð að leiðarljósi“ merki ekki það sama og „ástunda vönduð vinnubrögð“.
„Það er hægt að hafa fallega stefnu án þess að fylgja henni eftir í verki. Ýmis dæmi hafa verið nefnd um óvönduð og vafasöm vinnubrögð Samherja og nærtækast að vísa í „afsökunarbeiðni“ fyrirtækisins nýlega vegna starfsemi „skæruliðadeildar“ þess,“ segir hann.
„Við viljum ekki láta við það sitja að biðjast afsökunar heldur draga lærdóm af þessum mistökum og tryggja að ekkert slíkt gerist aftur.“
Eiríkur segir að hér sé enn dregið úr. „„Mistök“ er mun vægara orð en „ámælisverðir viðskiptahættir“ sem gengist var við í upphafi.“
„Í því skyni höfum við gripið til viðamikilla ráðstafana.“
Um þessa setningu segir Eiríkur:
„Ekki er minnst á það í hverju þessar ráðstafanir felist þannig að þetta segir ekki neitt.“
„Frá upphafi hefur það verið meginmarkmið okkar að framleiða hágæða sjávarafurðir í sátt við umhverfið með ríka áherslu á sjálfbærni og góða umgengni við auðlindir sjávar. Við viljum halda því áfram og horfa fram á veginn.“
Eiríkur segir að hér komi sjálfshól um fyrirtækið, skreytt með frösum eins og „í sátt við umhverfið“, og „með ríka áherslu á sjálfbærni“.
Hann segir að þetta komi málinu ekkert við en er til þess ætlað að skapa jákvæða ímynd og milda hug lesenda þannig að þeir fyrirgefi frekar „mistökin“.
Síðasta setningin sem Eiríkur greinir er þessi hér:
„Mistök okkar í Namibíu eru ekki síst okkur sjálfum mikil vonbrigði. Við munum ekki láta slíkt henda aftur.“
Um hana segir hann þetta:
„Sem sagt: Við pössum okkur á því í framtíðinni að láta ekki komast upp um okkur.“