Ei­ríkur gáttaður á verð­laginu og birtir kvittun: „Gamli ís­lenski hall­æris­maturinn“

Fjöl­miðla­maðurinn þraut­reyndi Ei­ríkur Jóns­son er allt annað en sáttur með verðið á Þorra­mat í Mela­búðinni. Hann skrifar um þettaí bloggi sínu og segir að þorra­matur sé kominn á sama verð og nauta­lund.

„Gamli ís­lenski hall­æris­maturinn, sá súri sem lands­menn neyddust til að borða á þorranum og góunni þegar fersk­meti var nánast ó­fáan­legt, er heldur betur kominn í lúxus­flokkinn ef marka má verðið í Mela­búðinni.

Kíló af súrum hrúts­pungum á 5.798 kr og kíló af súrri sviða­sultu á 4.398 kr,“ skrifar Ei­ríkur.