Eiríkur Brynjólfsson kennslustjóri er látinn, 69 ára að aldri. Eiríkur kom víða við á ferli sínum, hann kenndi íslensku við Ármúlaskóla í Reykjavík frá frá 1974 til 1978 og Fjölbrautaskólann við Ármúla 1979 til 1990.
Þá var hann kennari og deildarstjóri sérdeildar unglinga við Austurbæjarskóla árin 1994 til 2000 og deildarstjóri sérkennslu unglinga og umsjónarmaður námsvers unglinga í Austurbæjarskóla árin 2000 til 2006. Hann sneri sér aftur að íslenskukennslu við Fjölbrautaskólann við Ármúla árið 2007 og var einnig kennslustjóri almennrar námsbrautar við skólann allt til dauðadags.
Greint er frá andláti Eiríks í Morgunblaðinu í dag.
Eiríkur var einnig prófarkalesari á DV og skrifaði pistla í blaðið um íslenskt mál, þá var hann þýðandi á Stöð 2 og ritstjóri Kennarablaðsins fyrir Hið íslenska kennarafélag frá 1988 til 2000. Eiríkur var einnig foringi Hins íslenska glæpafélags, félags rithöfunda og áhugamanna um glæpasögur.
Á ferli sínum sendi hann frá sér smásagnasöfn og ljóðabækur og smásögur og ljóð sem birtust meðal annars í safnritum og tímaritum.