Bloggarinn Eiríkur Jónsson er allt annað en sáttur með hvað Nettó rukkar neytendur fyrir burðarpoka en verðið hefur hækkað á síðustu dögum. +
„Plastburðarpoki er kominn í 60 krónur í Nettó. Innan við ár er liðið frá því að við sögðum frá því að burðarpokinn væri kominn í 50 krónur í Nettó.
Þetta er svívirðilegt okur, því pokinn kostar um 8 krónur í innkaupum. Álagningin er mörg hundruð prósent,“ skrifar Eiríkur.
„Án vafa eru hinar matvörubúðirnar líka búnar að hækka verðið á burðarpokunum. Allt er það gert undir því yfirskini að verið sé að vernda umhverfið og loftslagið og verðlagningin sé til að fæla fólk frá því að kaupa alltaf nýja og nýja poka. Í staðinn eigi fólk að koma með margnota poka – þó svo að rannsóknir hafi sýnt að þeir menga umhverfið margfalt á við plastpokana. Þar að auki eru plastpokarnir margnota, ýmist undir endurtekin innkaup eða heimilisruslið.
Auðvitað er þetta umhverfistal um pokana ekkert annað en þvættingur til að réttlæta okrið, því að stór hluti alls þess sem verslanirnar selja okkur er pakkað inn í plast sem er 100% einnota,“ bætir Eiríkur við.