Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona, ritstjóri og vinkona Gísla Rúnars Jónssonar leikara, flutti minningarorð í útför hans sem fram fór í gær. Óhætt er að segja að kveðja Steinunnar hafi verið falleg en hún birti minningarorðin í heild sinni á Facebook-síðu sinni í dag.
Gísli Rúnar Jónsson lést 28. júlí síðastliðinn, 67 ára að aldri.
„Nóttina eftir að ég fékk af því fregnir að okkar kæri Gísli Rúnar væri allur hrökk ég upp með andfælum og fannst Gísli vera að kalla á mig. Sú sýn sem blasti við mér út um svefnherbergisgluggann minn er erfitt að lýsa með orðum og reyndar svo furðuleg að ég hljóp til, náði í símann minn til að taka mynd og var ekki í nokkrum vafa um að hann hafði vitjað mín í́ draumi. Margir álíta svona lagað óra og ég skal þá viðurkenna að ég finn dálítið til með þeim sem með rökhyggju deyfa allt það sem vísindin eiga enn engin orð yfir og sem umlykur okkur og er okkur æðra. Gísli var slíkur maður að rökleg hugsun getur hvorki skilið hann né skýrt hann,“ sagði Steinunn Ólína.
Steinunn Ólína sagði að ástríða hefði verið Gísla í blóð borin og sú ástundun og natni sem hann lagði í alla hluti hafi verið ofurmannleg. „Hann lagði alltaf allt í sölurnar,“ sagði hún og bætti við að Gísli Rúnar hefði verið listamaður af guðs náð og sennilega aldrei þrifist við aðra iðju.
„Það er mín trú að þeir sem með réttu geta kallast listamenn fæðist með þeim ósköpum og hafi þar ekkert val. Engum verður kennt að verða listamaður. Sumir fæðast með sérgáfur umfram aðra og ef þeir að auki eru vinnusamir og hafa ástríðu fyrir sínu fagi þá́ skara þeir fram úr. Gísla var allt þetta gefið.“
Hún segir að Gísli hafi verið fullkomnunarsinni, fylginn sér og sett mark sitt á tilveru allra sem hann þekktu og líka þeirra sem þekktu hann ekki persónulega.
„Sennilega mun okkur aldrei til fullnustu skiljast hversu víða áhrifa hans gætir í íslensku samfélagi,hversu fátækari leikhúsheimurinn, grínheimurinn, auglýsinga og tónlistarbransinn og sjónvarp og útvarp á Íslandi væri ef hans hefði ekki notið við,“ sagði hún.
Þá kom Steinunn Ólína inn á það í minningarorðum sínum að afburðafólk sé gjarnan hógvært og búi yfir örlæti sem lyftir öllu og öllum í kringum sig, en veitist að sama skapi örðugast að sýna sjálfu sér samskonar atlæti.
„Það er akkúrat þetta sem hefur orðið mér mikið umhugsunarefni við fráfall okkar elskaða Gísla Rúnars og það er ósk mín að hans dauði verði okkur til einhvers lærdóms um það hvernig við getum betur greitt götu þeirra listamanna sem geta illa tekið þátt íþví praktíska vafstri sem tilverunni fylgir og gert þeim kleift að sinna köllun sinni. Að okkur beri gæfa til að bera skynbragð á og styðja með kostum og kynjum þá́ sem búa til ómetanlegar gjafir okkur til handa.“
Minningarorð Steinunnar um Gísla Rúnar má lesa í heild sinni hér að neðan í Facebook-færslu Steinunnar Ólínu.
Minningarorð flutt í útför Gísla Rúnars í gær. Nóttina eftir að ég fékk af því fregnir að okkar kæri Gísli Rúnar...
Posted by Steinunn Olina Thorsteinsdottir on Föstudagur, 21. ágúst 2020