Einstakt bréf Megasar til syrgjandi eiginmanns

„Svarið reyndist mér dýrmætara en mig hefði getað órað fyrir. Og það auðveldar mér að sleppa nú takinu af lyklaborðinu, sem ég hef ríghaldið í án þess að gera mér glögga grein fyrir því.“

Þetta segir Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, á minningarvef sem settur var upp í minningu eiginkonu hans, Engilbjartar Auðunsdóttur, sem lést í apríl 2019.

Óhætt er að segja að um einstakan minningarvef sé að ræða þar sem Ólafur Teitur fer yfir veikindi hennar og þann tæpa aldarfjórðung sem þau áttu saman, auk hugleiðinga um lífið og tilveruna.

Í einum kaflanum, sem fjallar um upphaf sambands þeirra árið 1995, nefnir Ólafur Teitur að eftir próflok um vorið hafi hann haldið norður í land og byrjað í sumarstarfi í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Staðarskála.

„Frekar en að hætta á að samband okkar myndi fjara út yfir sumarið ákvað ég að láta til skarar skríða og sendi henni kasettu með lögum sem fólu í sér einhver viðeigandi skilaboð, ásamt bréfi,“ segir Ólafur Teitur sem bætir við að fyrsta lagið á umræddri spólu hafi verið lagið „Viltu byrja með mér?“ með Megasi.

„Ekki mundi ég fyrr en ég gróf bréfið upp að ég hefði skrifað það úr munni Megasar,“ segir Ólafur Teitur en í því sagði hann meðal annars: „Sæl vertu. Einn ágætur félagi minn er farinn að sakna þess að fá þig í heimsókn. Ég ákvað því að gera honum greiða og senda þér þessa spólu […] Hann sagði reyndar að þú værir svona Verzló-dama sem værir ekki gefin fyrir drama, en ég held að hann sé bara steiktur. Þú hefur þá bara húmor fyrir þessu. Ef þetta ber einhvern árangur, hringdu þá í hann á laugardaginn í síma 95-12955.“ Undir bréfinu, sem má lesa í heild sinni hér, var svo nafn Megasar.

Til að gera langa sögu stutta hringdi Engilbjört og segist Ólafur enn muna fiðringinn þegar hann var kallaður í símann. Í síðasta kaflanum á minningarsíðunni segir Ólafur að við lokafrágang handritsins fyrir skemmstu hafi vaskur maður boðist til að aðstoða hann við að koma á framfæri við Megas ósk hans um leyfi til að vitna í texta hans.

„Það valt mikið á þessari bón; frásögnin af sjálfu upphafi sambands okkar Engilbjartar með bréfinu góða og örlagagletturnar undir lok þess,“ segir Ólafur Teitur sem bætir við að lokum að svarið hafi reynst honum dýrmætara en hann hefði getað órað fyrir:

„Það er huggulegt að vita til þess að þú skulir geta gert þér einhvert gagn úr þessum textum sem vissulega eru sprottnir af gamansemi guðanna. En vegir kímnigáfu guðanna eru órannsakanlegir svo maður verður að næra sig með brotum einum og sjúga úr þeim merkinguna.
     Ég þarf ekki að taka það fram en þér er auðvitað leyfilegt að nota þessar línur í prentuðu máli að vild og það gildir jafnframt um fleira sem þú mögulega rekst á og er merkingarbært fyrir þér.
     Ég harma missi þinn en dáist að aðferð þinni við að vinna úr honum.
     Gangi ykkur feðgum vel.
     Vivi
     Megas“