Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans segir í samtali við Fréttablaðið að berklasmit hérlendis sé stormur í vatnsglasi og ekkert til þess að hafa áhyggjur af.
Einstaklingur greindist með berkla á Landspítalanum fyrir helgi en situr nú í einangrun, þó ekki á Landspítalanum.
Einstaklingurinn greindist með fjölónæma berkla, sem þýðir að þeir séu ónæmari fyrir fleiri lyfjum en venjulegir berklar.
Már segir þó nokkur berklasmit greinast hérlendis á hverju ári, oftast eru þeir einstaklingar sem greinast að ferðast frá ríkjum „þar sem heilbrigðiskerfin eru í molum,“ eins og Már orðaði það. „Svo lendir þetta kannski í einhverjum hérlendis og þá fylgjumst við með,“ segir Már. Hann segir einstaklinginn ekki vera alvarlega veikan.
Einstaklingur smitaður af berklum hérlendis- „Þetta er bara business as usual“
Fleiri fréttir
Nýjast