Einstæð móðir fékk áfall þegar hún opnaði heimabankann: Nýbúin að fá útborgað en reikningurinn tómur

Einstæð þriggja barna móðir fékk áfall þegar hún kíkti í heimabankann sinn í appi Íslandsbanka í fyrradag, 1. febrúar, en þá komst hún að því sér til skelfingar að reikningurinn var tómur þrátt fyrir að hún hafi verið nýbúin að fá útborgað.

Fréttablaðið segir frá þessu í dag en í fréttinni kemur fram að smálánafyrirtækið Núnú ehf. hafði tæmt bankareikninginn með tíu færslum sem allar voru á milli 28 og 29 þúsund krónur.

Móðirin er sögð hafa skrifað færslu í hópinn Hjálpum fólki þar sem hún sagðist hafa asnast til að taka lán hjá fyrirtækinu fyrir einu og hálfu ári og engin viðvörun hafi verið gefin áður en öll launin hennar hafi verið tekin.

Móðirin sagði í færslunni að hún gæti ekki borgað leigu eða keypt mat fyrir börn sín þennan mánuð og bað hún þar af leiðandi um aðstoð, til dæmis með mat eða flöskum.

Fréttablaðið hefur eftir Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, sem segir samtökin telja skuldfærslur af þessu tagi andstæðar lögum, þær séu allt of víðtækar, ekki sé kveðið á um tiltekinn dag eins og til dæmis þegar fólk lætur skuldfæra líkamsræktarkortið eða Visa-reikninginn né tiltekna upphæð.

„Þá eru lán er ekki skuldfærð strax eftir eindaga eins og eðlilegt væri heldur eftir að innheimtukostnaður hefur safnast upp. En það er einmitt viðskiptamódelið, að safna innheimtukostnaði á kröfurnar.“

Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri Núnú lána ehf., segir við Fréttablaðið að fyrirtækið hafa heimild til að gjaldfæra kort til endurgreiðslu lána og kostnað af þeim. Þetta sé ekki nýtt og algeng leið til endurgreiðslu og tryggingar lána og segir sams konar skilmála hjá Valitor, Borgun og bönkunum.

Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag.