„Eins og óráðstal úr veikum manni“ segir Gunnar Smári um Halldór Benjamín: „Mikill hiti, en ekkert vit“

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segir að fyriræki landsins myndu spara milljarða með því að gangast við kröfum Eflingar, en í stað þess haldi deilur SA og félagsins áfram.

„Og rökin? Halldór Benjamín segist hafa lofað Vilhjálmi Birgissyni að semja ekki við Eflingu.Það sem rennur frá Samtökum atvinnulífsins er eins og óráðstal úr veikum manni. Mikill hiti, en ekkert vit.“ segir Gunnar á Facebook-síðu sinni, en hann fékk í kjölfarið svar frá Vilhjálmi.

„Ég spyr þig Gunnar Smári, hvað rekur þig til að halda fram þessum síendurtekna rógburði gagnvart 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins?“ segir Vilhjálmur sem bætir við: „Þú vílar ekki fyrir þér að ata fólk auri og ástunda rógburð og haga þér eins og versti mykjudreifari með skrifum þínum.“

Vilhjálmur vill meina að sambandið hafi ekki verið að velta fyrir sér mögulegum samningum annara félaga þegar þau gengu frá sínum kjarasamningi. Þá bætir hann við að það hafi alltaf verið vitað að það sé skýr vinnuregla hjá SA að þegar þau semji við stóran hóp þá muni þau fylgja þeirri línu í þeim samningum sem eftir eru.

„Það hefur ekkert með stéttarfélögin að gera enda er það alfarið ákvörðun SA.“ segir Vilhjálmur.

Í kjölfarið hefur Gunnar birt aðra færslu þar sem hann svarar Vilhjálmi.

„Þegar ég benti enn og aftur á þennan málflutning Halldórs Benjamín fyrir tveimur dögum, áður en hann endurtók þetta í Kastljósi, réðst Vilhjálmur Birgisson á mig hér á veggnum með gífuryrðum og skömmum. Í stað þess að tilkynna að Halldór Benjamín sé að ósekju að flytja ábyrgðinni á óbilgirni sinna samtaka yfir á Vilhjálm og fleiri forystumenn verkalýðshreyfingarinnar, þá kaus Vilhjálmur að ráðast að mér og saka mig um guð má vita hvað ekki.“ skrifar Gunnar.