Einn til við­bótar látinn vegna CO­VID-19

Tuttugu og fjórir eru nú látnir vegna CO­VID-19 hér á landi, en einn sjúk­lingur lést á Land­spítalanum síðasta sólar­hring eftir að hafa greinst með veiruna. Þetta kemur fram á vef Land­spítalans.

Fimm and­lát urðu um helgina hér á landi vegna CO­VID-19, en í öllum til­fellum var um að ræða aldraða ein­stak­linga. Páll Matthías­son, for­stjóri Land­spítala, sagði á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna í gær­morgun að sjötta dauðs­fallið væri yfir­vofandi.

And­lát í þessari bylgju far­aldursins eru orðin fjór­tán talsins.

Á vef CO­VID.is kemur fram að 75 séu nú á sjúkra­húsi og þrír á gjör­gæslu. Í gær voru 621 ein­stak­lingur í ein­angrun vegna veirunnar en nýjar tölur um fjölda smita í gær eru væntan­legar klukkan 11.