Einn ríkasti maður Ís­lands býðst til að borga lög­fræði­kostnaðinn

Haraldur Ingi Þor­leifs­son, stofnandi hönnunar­fyrir­tækisins Ueno og einn ríkasti maður Ís­lands býðst til þess að borga lög­fræði­kostnað fyrir alla þá sem Ingó Veður­guð hefur stefnt.

Þetta til­kynnir hann á Twitter síðu sinni nú í kvöld. Ueno var ein­mitt selt til banda­ríska sam­fé­lags­miðlarisans fyrr á þessu ári og er Haraldur vel efnaður.

Sjá einnig: Ingó fer í hart og kærir: Fimm fá kröfu­bréf

Hann hefur til að mynda vakið mikla at­hygli fyrir verk­efnið Römpum upp Reykja­vík, þar sem römpum fyrir hjóla­stóla hefur verið komið fyrir fyrir utan hundruð verslana í mið­bæ Reykja­víkur.

Eins og al­þjóð veit til­kynnti Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður Ingós Veður­guðs fyrr í kvöld að þeim konum sem standa að baki 32 sögur af meintu kyn­ferðis­of­beldi tón­listar­mannsins verði kærðar. Þá fá fimm til við­bótar kröfu­bréf.