Einn milljarður til heilbrigðisstarfsfólks: Hætta á smiti daglegur veruleiki margra

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur nú ákveðið að verja einum milljarð króna í sérstakar álagsgreiðslur til starfsfólks sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana vegna COVID-19.

Greiðslurnar til heilbrigðisstarfsfólks verða í formi eingreiðslna og fara til starfsfólks á framlínunni á sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum og í heilsugæslunni en mikið álag hefur verið á þeim og er hætta á COVID-19 smiti daglegur veruleiki margra.

Þá var einnig ákveðið að auka framlög til geðheilbrigðisþjónustu um 540 milljón krónur tímabundið til eins árs.

Geðheilbrigðisþjónustan verður efld með fjölgun sérfræðinga í geðheilsuteymunum og innan heilsugæslunnar. Aukin áhersla verður lögð á að tryggja jafnt aðgengi landsmanna að þjónustunni.

Aðgerðirnar eru liður í margþættum aðgerðum stjórnvalda vegna áhrifa kórónaveirufaraldursins hér á landi en aðgerðarpakkinn var kynntur af ríkisstjórninni í dag. Aðgerðirnar í heild sinni má nálgast á vef Stjórnarráðsins.