Húkkaraballið í Eyjum fór rólega fram í gær að sögn lögreglu en talsverður fjöldi fólks er kominn til Vestmannaeyja til að fara á Þjóðhátíð, samkvæmt Grími Hergeirssyni lögreglustjóra í Eyjum.
Að sögn Harðar Orra Grettissonar, formanns Þjóðhátíðarnefndar ÍBV var um eitt fjölmennasta Húkkaraballið hingað til.
Einn einstaklingur var handtekinn af lögreglu eftir að hafa veist að lögreglumönnum er þeir hugðust hafa afskipti af honum . Þá komu einnig upp tvö minniháttar fíkniefnamál, segir Grímur.
Einn einstaklingur gisti fangageymslu að eigin ósk. „Hann átti aðeins erfitt með að muna hvar hann var í gistingu,“ sagði Grímur.
Þjóðhátíð verður svo formlega sett eftir hádegið í dag og dagskrá standa fram á mánudag. „Nú er bara sól og blíða hérna, sem lofar góðu, þrátt fyrir bölsýnis veðurspár,“ sagði Grímur sem segist bjartsýnn á framhaldið sem vonar að þessi fyrsta Þjóðhátíð síðan 2019 fari jafn vel fram og fyrsta nóttin.