Tiltölulega fáir lögðu leið sína að eldgosinu í Geldingadölum í gær en mikill kuldi var þá á svæðinu og vindur um það bil 20 metrar á sekúndu. Tæplega 500 manns fóru að gosinu í gær sem er mun minna en dagana þar áður.
Sigurður Bergmann, sem er yfir vettvangsstjórn lögreglunnar við gosstöðvarnar, segir í samtali við Fréttablaðið að einn einstaklingur hafi verið fluttur á sjúkrahús vegna gasmengunar á svæðinu. Umræddur einstaklingur var með eitrunareinkenni.
Að öðru leiti segir Sigurður daginn hafa gengið vel, enda aðeins um að ræða um það bil 10 prósent af venjulegri traffík. Aðspurður um hvort gert sé ráð fyrir fleirum í dag segir hann það ómögulegt að segja.
Aðgangur að gosstöðvunum opnaði klukkan 12 í gær en þá var einnig kalt og mikill vindur á svæðinu. Samkvæmt upplýsingum á vefnum Mælaborð ferðaþjónustunnar sóttu um 480 manns gosið í gær sem er að sögn Sigurðar aðeins um tíu prósent af venjulegri traffík.
„Við gerum bara ráð fyrir að það komi einhver fjöldi í dag. Við erum með mannafla til að takast á við það, sama og hefur verið undanfarna daga,“ segir Sigurður.
Annar í páskum hefur farið heldur rólega af stað en opnað var fyrir umferð að gosstöðvunum klukkan sex í morgun og voru þá örfáir mættir að sögn Sigurðar.
„Það er mjög fallegt veður, það er hægur norðan vindur og dálítið kalt en nánast heiðskýrt,“ segir Sigurður. „Þannig að aðstæður til að skoða gosstöðvar gerast ekki betri, ef fólk er vel klætt það er að segja.“